Þriðjudaginn 27. júlí kl. 11.17

Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir starta þjóðhátíð í Eyjum 2010 annað kvöld

Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir starta þjóðhátíð í Eyjum 2010 annað kvöld
Árum saman hafa þessar tvær af vinsælustu „Norðlensku“ hljómsveitum landsins, leitað leiða til að halda sameiginlega tónleika í höfuðstað Vestmannaeyjaklasans en þrátt fyrir ráðleggingar frá helstu stjörnuspekingum, fjármálaráðgjöfum, og borðtennislandsliðinu hefur ekki tekist að koma saman trúverðugri dagsetningu á slikan konsert.

Þangað til núna. Skyndilega skýst upp á yfirborðið miðvikudagurinn 28. júlí og einhvern veginn bara... smellpassar, svona mátulega rétt fyrir Verslunarmannahelgina en um hana ku gjarnan vera fjör í Eyjum. Staðurinn er að sjálfsögðu Höllin, tímasetningin 21.00 og miðaverð í forsölu 2.500 kr. þannig að það margborgar sig að vera tímanlega í því að tryggja sér miða þar sem miðaverð við dyrnar er 3.500 og þar með er verið að eyða alltof miklum peningi í vitleysu.
 
Báðar hljómsveitirnar hyggjast spila alls konar lög og segja brandara sem hafnað hefur verið af ritstjórn Séð og heyrt.
 
Forsala á www.midi.is og Volcano Eldbakan.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn