Miðvikudaginn 28. júlí kl. 17.15

Allt á fullu í Landeyjahöfn

Allt á fullu í Landeyjahöfn
„Tjaldbúarnir og þeir sem ætla á þjóðhátíð fara að koma. Traffíkin í dag hefur ekkert verið meiri en venjulega þar sem það hefur alltaf allt verið fullskipað frá því að höfnin opnaði,“ segir Sigmar Jónsson. Hann segir farið að bæta við ferðum á morgun en þá verða farnar átta ferðir. Farnar verði sex, sjö og átta ferðir á sólarhring yfir verslunarmannahelgina. Venjulega eru farnar fjórar ferðir mánudaga til miðvikudaga en fimm ferðir hina dagana.

Sigmar segir allt til reiðu til að taka á móti auknum farþegafjölda og fjölda manns vera í vinnu við að sjá til þess að allt gangi sem best fyrir sig. Yfir þjóðhátíð hafi verið bætt við 15-18 manns umfram venjulegan mannskap, í öryggisvörslu og annað.
 
www.mbl.is greindi frá.
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn