Miðvikudaginn 28. júlí kl. 13.00

ÍBV tókst það sem KR tókst ekki

ÍBV tókst það sem KR tókst ekki
Eyjamenn hafa samið við suður-afrísku knattspyrnukonuna Noko Matlou sem kjörin var besti leikmaður Afríku í febrúar 2009. Hún er þegar komin með leikheimild og má því leika með 1. deildarliðinu gegn Fjölni á fimmtudagskvöld.  Matlou hefur áður verið í fréttum hér á landi því í fyrra reyndi KR að fá hana til sín. Ekkert varð úr því en talið er að umboðsmaður Matlou hafi samið við KR án vitundar félagsins sem hún var þá hjá, Brazilian Ladies FC.

Matlou er sóknarmaður og varð meðal annars markahæst, ásamt öðrum leikmanni, á Afríkumóti landsliða árið 2008 þar sem hún skoraði sex mörk.
 
ÍBV ætlar sér að komast uppí úrvalsdeild í haust en liðið er í 2. sæti B-riðils í 1. deildinni á eftir Selfossi, með níu stiga forskot á næsta lið. Tvö efstu liðin í riðlinum fara í umspil við tvö efstu lið A-riðils, sem eru Þróttur R. og Keflavík, um tvö laus sæti í úrvalsdeildinni.
 
www.mbl.is greindi frá.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Stalla-Hú í Árbænum
Þjóðhátíð 2010 - Brekkusöngur og blys
Þjóðhátíð 2010 - Sunnudagur
Þjóðhátíð 2010 - Söngvakeppni barna og fleira
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi