Miðvikudaginn 28. júlí kl. 19.59
Myndir og myndband

Nýja tilraunin gekk vel

- Eyjamenn hlupu til og fundi sér tjaldstæði í dag eftir settum reglum


Í dag var gerð áhugaverð tilraun þegar reynt var að koma skipulagi á tjöldun hvítu tjaldanna á þjóðhátíð.  Til þessa hefur verið hálfgert skipulagsleysi þegar kemur að því að finna tjaldinu pláss en nú var ákveðið að láta slag standa, hælun tjaldplássa yrði ekki leyfð fyrr en á slaginu 18:00 og var fengin fallbyssa til að gefa merki.  Tjaldbúar biðu spenntir og minnti uppákoman helst á villta vestrið þegar hleypt var á ný landsvæði.  Og þótt fallbyssan hafi klikkað, beið fólk þar til klukkan á stóra sviðinu sló 18:00 og hljóp þá af stað.  Myndir og myndband af viðburðinum má sjá hér að neðan.

Starfsmenn þjóðhátíðanefndar, sem hafa unnið dag og nótt við að setja upp mannvirki og annað í Herjólfsdal fengu að velja sér stæði fimm mínútum á undan öðrum.  Aðrir virtu rétt starfsmannanna og biðu átekta á meðan. 
 
Uppákoman var öll hin skemmtilegasta og mikið sjónarspil.
 
Nýja tilraunin gekk vel
Nýja tilraunin gekk velNýja tilraunin gekk velNýja tilraunin gekk velNýja tilraunin gekk vel
Eins og sjá má var mikill hamagangur í Herjólfsdal í kvöld.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn