Miðvikudaginn 28. júlí kl. 11.16

Þjóðhátíðarlagið í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2

- sent beint út frá tónleikum á sunnudegi Þjóðhátíðarinnar.

Þjóðhátíðarlagið í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2 Brekkusöngur verður í beinni eins og undanfarin ár.
Eins og svo oft áður eru misjafnar skoðanir á þjóðhátíðarlagi ársins en KK var fenginn til að semja og leika þjóðhátíðarlagið í ár.  Það gerði hann með laginu Viltu elska mig á morgun sem er ljúf ballaða með áherslum KK.  Flestir eru þó sammála um að lagið sé fallegt enda situr það nú á toppi vinsældarlista Rásar 2 en nýr listi var kynntur á laugardaginn.  Þetta telst mjög góður árangur enda hefur lagið aðeins verið í þrjár vikur inni á listanum.

 
Sent út í beinni á Rás 2
Rás 2 mun í ár senda beint út frá tónleikum brekkusviðs á sunnudagskvöldið en útsendingin mun standa frá klukkan níu til eitt um nóttina.  Undanfarin ár hefur brekkusöngur Árna Johnsen verið í beinni en nú á að bæta kvölddagskránni við.  Þetta kvöld munu stíga á svið hljómsveitin Buff ásamt Ragnhildi Gísladóttur, Hreimi Heimissyni og Guðrúnu Gunnarsdóttur.   Bubbi Morthens tekur svo við af Buffinu og spilar fram að brekkusöngnum með Árna Johnsen.  Eftir brekkusöng, flugeldasýningu og blystendrun, mun svo sjálfur Páll Óskar Hjálmtýsson stíga á stokk og hefja dansleik á stóra sviðinu í beinni á Rás 2.
 
Rás 2 sendir oft út frá tónleikum íslenskra tónlistarmanna og fannst forsvarsmönnum stöðvarinnar komi tími til að senda meira út frá þjóðhátíðinni sem er vissulega orðinn einn af hápunktum íslenska tónlistarsumarsins. Sighvatur Jónsson mun hafa umsjón með útsendingunni.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn