Miðvikudaginn 28. júlí kl. 16.29
Tjöldum saman!

Tjöldun hefst í kvöld klukkan 18.00

- Nýtt skipulag á því hvenær súlurnar fara upp

Tjöldun hefst í kvöld klukkan 18.00
Í dag klukkan 18.00 hefst tjöldun hvítu tjalda þjóðhátíðarinnar en þá finna heimamenn tjaldinu sínu stað.  Gera á tilraun í ár með að jafna leikinn þannig að allir fari af stað á sama tíma, nema hvað starfsmenn þjóðhátíðarnefndar fá að velja sér pláss á undan öðrum og eru það laun þeirra.  Oftast nær er talsverður slagur um að finna besta plássið en aldrei hefur verið hægt að standa við tímasetningar fyrr en nú.  Eða hvað?

Auk þess að ákveða sérstaka tímasetningu á því hvenær fólk finnur sér stað fyrir tjaldið, hefur verið ákveðið að skipuleggja hvenær menn tjalda.  Þannig mun hver gata fyrir sig koma með súlurnar á fyrirfram ákveðnum tíma sem má sjá hér að neðan.
 
Fimmtudagur 29. júlí
Kl. 11.00
Reimaslóð
Týsgata
Þórsgata
Ástarbraut
 
Kl. 12.00
Veltustund
Skvísund
Lundaholur
 
Kl. 13.00
Sigurbraut
Sjómannasund
Golfgata
 
Kl. 14.00
Efri byggð
Klettar
 
Vinsamlegast virðið tímasetningar svo tjöldun og frágangur gangi sem hraðast fyrir sig.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn