Stýrihópur vegna þjóðhátíðar fundaði í vikunni en á fundinum var m.a. rætt um aðstöðu þjóðhátíðargesta í Landeyjahöfn. Aðstaðan er ekki tilbúin og því ljóst að vandamál gæti skapast við afgreiðslu skipsins og ekki síður fyrir þá fjölmörgu þjóðhátíðargesti sem hyggjast skilja bíla sína eftir við höfnina og halda þannig til Eyja. Nú er hins vegar unnið að því að útbúa viðbótarbílastæði sem eiga að rúma 2000 bíla.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 28. júlí kl. 12.44
Unnið að bílastæðamálum í Landeyjahöfn
„Eimskip er að vinna í bílastæðamálum í samráði við Siglingastofnun, sem hefur umsjón með Landeyjahöfn og því sem henni tilheyrir. Það verður farið í að gera viðbótarstæði og munu geta verið þarna um 2.000 bílar eftir því sem mér skilst,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri en hann á sæti í stýrihópnum.









