Fimmtudaginn 29. júlí kl. 22.21
1. deild kvenna

Eyjastúlkur öruggar í úrslit 1. deildar

- Unnu Fjölni og hafa 14 stiga forystu á ÍR sem getur mest náð 9 stigum í viðbót

Eyjastúlkur öruggar í úrslit 1. deildar
Kvennalið ÍBV lék í kvöld gegn Fjölni í B-riðli 1. deildar kvenna en leikurinn fór fram við frekar erfiðar aðstæður á Hásteinsvellinum.  Völlurinn sem slíkur var ekki slæmur heldur veðrið, því á meðan leik stóð var sterkur vindur á annað markið og auk þess rigning lengst af.  Eyjastúlkur léku gegn vindinum í fyrri hálfleik en voru engu að síður yfir 1:0 í leikhléi.  Með sigrinum tryggðu Eyjastúlkur sér sæti í úrslitum 1. deildar en nú munar 14 stigum á ÍBV og ÍR, sem er í þriðja sæti en ÍR getur mest náð í 9 stig í viðbót.

Í seinni hálfleik voru Eyjastúlkur ekki í miklum vandræðum með að innsigla sigurinn enda hafði vindurinn talsverð áhrif á leikinn.  Eyjastúlkur skoruðu fjögur mörk í seinni hálfleik, þar af tvö með langskotum þar sem vindurinn hjálpaði talsvert til.  Lokatölur urðu því 5:0.
 
Eins og áður sagði eru Eyjastúlkur nú öruggar með annað sætið í B-riðli en ÍBV og Selfoss berjast um efsta sætið en tvö efstu lið riðilsins komast í úrslit og spila gegn tveimur efstu liðunum úr A-riðli.  Enn eru þó þrír leikir eftir í riðlakeppninni og þótt Selfoss hafi sem stendur þriggja stiga forystu, þá getur allt gerst enda eiga liðin eftir að leika á Hásteinsvelli í ágúst.
 
Mörk ÍBV: Hlíf Hauksdóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir, Edda Birgisdóttir, Sóley Guðmundsdóttir og Antonio Karel Ese.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn