Fimmtudaginn 29. júlí kl. 07.21
Stefnir í metþjóðhátíð - Nánast fullt í allar ferðir

Gestir í Herjólfsdal gætu orðið fjórtán þúsund í ár

Gestir í Herjólfsdal gætu orðið fjórtán þúsund í ár
Ríflega 11.600 farþegar eiga bókað far til Eyja vikuna og dagana fyrir þjóðhátíð en reikna má með að einhver hluti farþega með Herjólfi fyrri part viku hafi verið í dagsferðum. Ef farið er yfir flutningstölur frá síð­ustu þjóðhátíð þá komu 9.400 þjóðhátíðargestir með Herjólfi og flugi en nú má allt eins má reikna með um 12.000 manns ef allt er talið. Heimamenn í Dalnum eru líklega um tvö þúsund þannig að reikna má með í kringum 14.000 manna þjóðhátíð. Í fyrra voru gestir tæplega 10.000 þegar mest var.

Samkvæmt upplýsingum frá af­greiðslu Herjólfs verða 10.100 gestir fluttir með Herjólfi til Vestmannaeyja frá Landeyjahöfn, þ.e. frá og með fyrstu ferð sl. mánudag til síðustu ferðar á sunn­udag. Eitthvað af þessum farþegum eru í dagsferðum og ekki hægt að flokka sem þjóðhátíðargesti.
Til samanburðar áttu 6200 manns bókað far með Herjólfi vikuna fyrir Þjóðahátíð í fyrra. Nú er uppselt í nær allar ferðir frá miðvikudegi til laugardags, aðeins laust í ferðir aðfararnótt föstudags og laugardags. Eftir þjóðhátíð er uppselt í allar ferð­ir mánudag og þriðjudag frá Eyjum í Landeyjahöfn.
 
Hjá Flugfélagi Íslands eiga 1272 farþegar bókað far til Eyja frá fimmtu­degi til sunnudags sem er svipað og í fyrra. Eftir hátíðina eiga 1422 farþegar bókað far til Reykja­víkur.
 
Mýflug, sem flýgur frá Bakka, er með 250 bókaða far­þega til Eyja dagana fyrir og um þjóðhátíð og ennþá hægt að bóka far. Um 400 manns eiga bókað til baka á mánu­dag og þriðjudag og ennþá laust á þriðjudag.
 
Flugfélag Vestmanna­eyja sem er hætt rekstri flutti 1400 farþega frá Bakka til Eyja um síðustu þjóðhátíð. Norðurflug verður með þyrluflug frá Bakka eins og í fyrra en þá flutti Norðurflug 400 farþega til og frá Bakka. Þá áætlar flugfélagið Ernir að fljúga þrjár leiguvélar frá Hornafirði.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn