Löggæsla hefur verið efld frá fyrra ári og fíkniefnalöggæsla er öflug eins og alltaf áður. Nú verður mikil löggæsla og ekki síst fíkniefnalöggæsla í Landeyjahöfn á vegum lögreglunnar á Hvolsvelli sem njóta aðstoðar lögreglunnar á Selfossi. Að auki mun sérstakt teymi fíkniefnalögreglumanna á vegum ríkislögreglustjóra sinna eftirliti og munu koma yfir til Eyja til aðstoðar en einnig aðstoða uppi á landi á aðkomustöðum til Vestmannaeyja.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 29. júlí kl. 08.27
Þjóðhátíð:
Löggæsla efld til muna
Þá hefur gæsla á vegum samkomuhaldara verið efld til muna frá því í fyrra til þess að mæta auknum gestafjölda. Lögreglan í Vestmannaeyjum mun halda úti öflugu umferðareftirliti dagana fyrir þjóðhátíð og yfir hátíðina, en ljóst er að aukin bílaumferð verður í bænum með tilkomu
örari ferjusiglinga.
Það sem er ólíkt þessari hátíð miðað við fyrri ár er að lögregla rennir svolítið blint í sjóinn með það hvers eðlis þessi hátíð verður. Þess vegna hefur viðbúnaður verið aukinn, en lögregla óttast það helst að hingað komi meira að erfiðari gestum heldur en við eigum að venjast. Þá mun veðrið spila mikið inn í hversu til tekst, því vont veður eykur oft á pirring meðal þjóðhátíðargesta. Það eru því eindregin tilmæli lögreglu til allra þeirra sem verða í Eyjum yfir helgina að ganga hægt um gleðinnar dyr og aðstoða lögreglu og gæsluliða til þess að sem best takist til og þeir fáu sem vilja skapa leiðindi verði lítið ágengt.









