Það er ljóst að einhverjir sem eiga mjög bágt hafa verið á ferðinni í miðbænum í gær. Í morgun blasti ekki fögur sjón við okkur sem fórum um miðbæinn okkar. Aspartrén sem glatt hafa augu okkar allra bæði að sumarlagi sem og á vetrarmánuðum, þá skreytt ljósaseríum, hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvargi eða vörgum sem tóku sig til og brutu greinar af nær hverju einasta tré austan megin á Bárustígnum.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 29. júlí kl. 15.26
Ótrúleg skemmdarverk
Athæfi þetta hefur verið kært til lögreglu og eru þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um hvaða vesalingur, einn eða fleiri voru þarna á ferð, beðnir um að tilkynna það beint til löreglunnar.








