Jarl Sigurgeirsson hefur hýst smyril sem hann keyrði fram á í Grímsnesinu fyrir rúmri viku síðan. Hann er meiddur á væng og vonar Jarl að meiðsl­in séu ekki alvarleg og hægt verði að sleppa smyrlinum einhvern næstu daga. „Ég var að keyra í Gríms­nesinu þegar ég sá smyrilinn standa á veginum. Hann var svolítið vankaður og meiddur á væng. Gæti hafa lent fyrir bíl,“ sagði Jarl þegar hann var spurður um smyrilinn sem nú dvelst í bílskúrnum hjá honum.