James Hurst hefur verið seldur frá Portsmouth til enska úrvalsdeildarfélagsins WBA. Það var Tómas Ingi Tómasson, eyjamaður og þjálfari HK, sem greindi frá þessu í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld. Hurst hefur leikið frábærlega með ÍBV í sumar en hann skoraði í kveðjuleiknum gegn Fylki um helgina.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Mánudaginn 30. ágúst kl. 23.29
James Hurst frá ÍBV í ensku úrvalsdeildina
Hann er hægri bakvörður og verður athyglisvert að sjá hvort hann fái að spreyta sig í aðalliðinu.
Hurst er tíundi leikmaðurinn sem WBA kaupir í sumar, hinir eru Paul Scharner, Pablo Ibanez, Steven Reid, Gabriel Tamas, Boaz Myhill, Nicky Shorey, Somen Tchoyi, Peter Odemwingie og Marc-Antoine Fortune.
www.visir.is greindi frá.








