Tonny Mawejje, leikmaður ÍBV hefur verið valinn í úganska landsliðið sem leikur gegn Angóla 4. september næstkomandi í Afríkukeppninni. Næsti leikur ÍBV er ekki fyrr en 12. september þegar ÍBV tekur á móti KR og ætti Mawejje því ekki að missa af leiknum mikilvæga. Þess má til gamans geta að Úganda er í 69. sæti FIFA styrkleikalistans en til samanburðar má nefna að Ísland er tíu sætum neðar, eða í 79. sæti.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Mánudaginn 30. ágúst kl. 13.45
Mawejje valinn í úganska landsliðið
- leikur með liðinu gegn Angóla
Þetta eru fyrstu leikir Úganda í keppninni en auk Angóla, eru Kenýa og Gínea Bissau í riðlinum. Næsti leikur Úganda er svo ekki fyrr en í byrjun október.









