Þriðjudaginn 31. ágúst kl. 22.53
Úrslitakeppni 3. deildar:

KFS tapaði annað sinn fyrir Árborg og er úr leik

KFS tapaði annað sinn fyrir Árborg og er úr leik
KFS tapaði í annað sinn í kvöld fyrir Árborg en liðin mættust nú á gervigrasinu á Selfossi.  Selfyssingar höfðu betur á Hásteinsvelli um helgina 0:2 og ljóst að róðurinn var ansi erfiður fyrir Eyjamenn.  Ekki bætti úr skák að heimamenn komust í 1:0 í fyrri hálfleik og bættu svo við öðru marki sínu strax í upphafi síðari hálfleiks.  Þar með þurfti KFS að skora fjögur mörk en Árborg fékk ekki mörg mörk á sig í sumar á heimavelli.

Bjarni Rúnar Einarsson náði þó að minnka muninn úr vítaspyrnu á 61. mínútu en heimamenn bættu við þriðja markinu áður en yfir lauk og lokatölur því 3:1.  KFS er þar með úr leik í úrslitakeppninni en Árborg mætir Tindastóli í undanúrslitum.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn