Þriðjudaginn 31. ágúst kl. 10.16

Þórarinn Ingi valinn í U-21 árs landsliðið

Þórarinn Ingi valinn í U-21 árs landsliðið
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðsins í knattspyrnu hefur valið Þórarinn Inga Valdimarsson í leikmannahópinn fyrir næsta leik.  Ísland leikur afar mikilvægan leik gegn Tékklandi í síðasta leik sínum í riðlakeppni Evrópukeppninnar en Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins og hefur þegar tryggt sér sæti í umspili fyrir lokakeppnina.  Ísland á reyndar enn möguleika á efsta sætinu en verður að treysta á hagstæð úrslit úr leik Þýskalands og Tékklands um helgina.

Valið á Þórarni Inga kemur ekki á óvart enda hefur hann verið lykilmaður í liði ÍBV í sumar.  Hans var sárt saknað gegn Grindavík á dögunum og sást vel í leiknum gegn Fylki, hversu mikilvægur hann er liðinu. 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn