Þriðjudaginn 31. ágúst kl. 08.56
Skák:

Vinnslustöðvarmótið hefst á föstudaginn

Vinnslustöðvarmótið hefst á föstudaginn
Vinnslustöðvarmótið í skák fer fram næstkomandi helgi en nú þegar hafa hátt í tuttugu keppendur skráð sig til leiks.  Mótið hefst föstudaginn 3. september og lýkur svo daginn eftir en mótið er haldið í Skáksetrinu að Heiðarvegi í Vestmannaeyjum.  Tefldar verða sjö umferðir og verður mótið blandað með at- og kappskákum.  Enn er hægt að skrá sig til leiks í mótinu hjá forráðamönnum Taflfélags Vestmannaeyja.

Atskákirnar verð 2x20 mínútur og kappskákirnar verða 60 mínútur 30 sek á leik. Mótsgjald er 2.000,-. Skráning fer fram í athugasemdum við þessa færslu eða í símum 898 1067(Gauti), 858 8866 (Sverrir) og 692 1655 (Björn Ívar).
 
Dagskrá:
Föstudagur 3. september 2010.
20:00 1 umferð - Atskák.
20:50 2 umferð - Atskák.
21:40 3 umferð - Atskák.
Laugardagur 4. september 2010.
10:00 4 umferð - Kappskák.
13:30 5 umferð - Kappskák
17:00 6 umferð - Atskák.
17:50 7 umferð - Atskák.
18:30 Verðlaunaafhending og mótsslit.
 
Skákir eru reiknaðar til atskáksstiga og íslenskra stiga.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, auk sérstakra verðlauna fyrir þá sem eru fæddir 1995 og yngri, einnig fyrir u1600 stig og u1800 stig.
 
Tekið af heimasíðu Taflfélags Vestmannaeyja.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn