Miðvikudaginn 01. september kl. 19.30
Myndagallerí fylgir fréttinni

ÍBV í úrvalsdeild á ný

- Stelpurnar unnu Keflavík 4:1 í dag og 8:1 samanlagt

ÍBV í úrvalsdeild á ný
ÍBV í úrvalsdeild á nýÍBV í úrvalsdeild á nýÍBV í úrvalsdeild á nýÍBV í úrvalsdeild á nýÍBV í úrvalsdeild á nýÍBV í úrvalsdeild á ný
ÍBV er komið í úrvalsdeild á ný í kvennaknattspyrnunni en þar var liðið síðast sumarið 2005.  Stelpurnar unnu Keflavík í dag 4:1 og samanlagt 8:1 í einvíginu og eru því vel að því komnar að spila meðal þeirra bestu að ári.  Sigur ÍBV var aldrei í hættu og í raun var Keflavík aldrei líklegt til að koma í veg fyrir að Eyjastelpur kæmust upp.  Leikmenn og forráðamenn fögnuðu svo vel og innilega í leikslok enda varð liðið af sæti í úrvalsdeild síðasta sumar með dramatískum hætti.

Það þurfti greinilega ekkert að minna stelpurnar á hrakfarirnar fyrir ári síðan þegar FH skoraði jöfnunarmark í uppbótartíma og kom í veg fyrir að ÍBV spilaði í úrvalsdeild í sumar.  Leikmenn voru einbeittir á að láta slíkt ekki endurtaka sig, unnu glæsilegan útisigur í Keflavík 0:4 og gerðu svo það sem þurfti í leiknum í dag.
 
ÍBV hafði talsverða yfirburði á Hásteinsvellinum.  Edda Birgisdóttir skoraði eftir aðeins 9. mínútna leik þannig að Keflvíkingar þurftu þar með að skora fimm mörk til að komast áfram.  Þær minntu á sig á 18. mínútu þegar Nína Ósk Kristinsdóttir jafnaði fyrir Keflavík en í kjölfarið komu þrjú mörk frá ÍBV.  Kristín Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV aftur yfir á 23. mínútu, Lerato Kgasago bætti við þriðja markinu á 33. mínútu og Edda skoraði svo annað mark sitt og fjórða mark ÍBV á 36. mínútu.  Lerato var svo nærri því að koma ÍBV í 5:1 undir lok fyrri hálfleiks þegar hún skaut í þverslánna.
 
Síðari hálfleikur var svo frekar bragðdaufur.  Bæði lið fengu tækifæri til að skora og átti Eva Kristinsdóttir, leikmaður Keflavíkur gott skot í slánna.  En nær komust Keflvíkingar ekki og Eyjastúlkur fögnuðu vel og innilega í leikslok enda sæti í úrvalsdeild að ári í höfn.
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn