Kvennalið ÍBV í knattspyrnu getur í dag tryggt sér sæti í úrvalsdeild kvenna næsta sumar. Liðið tekur á móti Keflavík á Hásteinsvelli klukkan 17:00 í síðari leik liðanna í undanúrslitum 1. deildar. ÍBV vann leikinn í Keflavík nokkuð sannfærandi, 0:4 en sigurvegari einvígisins mætir til leiks í úrvalsdeildinni á næsta ári. Eyjastelpur mega því tapa með þremur mörkum en komast samt upp.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 01. september kl. 08.13
Úrslitakeppni 1. deildar kvenna:
Tryggja stelpurnar sér sæti í úrvalsdeild í kvöld?
- mæta Keflavík á Hásteinsvelli síðdegis í dag
Ástæða fyrir þessum skrítna leiktíma, klukkan 17:00 er að nú er farið að rökkva undir kvöld. Þess vegna þarf að byrja leikina fyrr, sérstaklega í svona úrslitaleikjum ef grípa þyrfti til framlengingar og vítaspyrnukeppni.
Forráðamenn ÍBV vonast eftir góðum stuðningi í dag enda einn mikilvægasti leikur stelpnanna í háa herrans tíð.







.jpg&newxsize=288&newysize=288&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0)

