ÍBV heimsækir í dag vini sína á Suðurlandinu í KFR en liðið hélt af stað frá Eyjum rétt áðan en heldur síðan á Hellu. Þar verða settar upp æfingabúðir með þjálfurum og leikmönnum ÍBV klukkan 14:00 en umsjón með æfingunum hafa þeir Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV og Heimir Hallgrímsson, þjálfari meistaraflokks karla. Viðræður um sameiningu félaganna tveggja hafa átt sér stað og halda þær viðræður áfram í dag.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 02. september kl. 11.10
Viðræður um sameiningu ÍBV og KFR
- ÍBV heimsækir Hellu í dag, setur upp æfingabúðir og spilar æfingaleik
Samkvæmt heimildum Eyjafrétta eru hugmyndir að KFR renni inn í ÍBV og leiki undir merkjum félagsins næsta sumar en ekki hefur verið gengið frá samkomulagi þess efnis.
“KFR mun svo grilla pylsur fyrir manskapinn áður en viðureign KFR og ÍBV mun fara fram kl. 16:00 á Hellu. Þetta er liður í því að auka tengslin milli félagana, og einnig vekja aukinn áhuga ungra knattspyrnuiðkanda á Suðurlandinu. Vitað er um mikinn áhuga Rangeyinga á leiknum og vonandi mæta sem flestir og taka þátt í þessum skemmtilega degi. Við minnum svo á næsta heimaleik ÍBV sem er gegn KR sunnudaginn 12. september, en nú fer hver að verða síðastur að ná sér í miða í Herjólf,“ segir á heimasíðu ÍBV.









