Nú er hafið handboltamót í kvennahandbolta í Eyjum en þar mætast ÍBV, Fram, HK og Haukar. Fyrsti leikur mótsins var í gær þegar ÍBV tók á móti Fram en Eyjastúlkur leika á ný í úrvalsdeild næsta vetur. Leiknum var skipt upp í tvo hálftíma leiki og höfðu Framarar mikla yfirburði í fyrri leiknum og unnu hann 8:19. Seinni leikinn unnu Eyjastúlkur hins vegar 16:14. Mótið heldur svo áfram í kvöld þegar ÍBV mætir Haukum klukkan 18:00.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Föstudaginn 03. september kl. 13.27
Æfingamót í handbolta hafið í Eyjum
- kvennalið ÍBV mætti Fram í tveimur örleikjum í gær
HK og Fram eigast svo við rúmlega átta í kvöld og á morgun, laugardag, spilar ÍBV á móti HK klukkan 10:00, Fram á móti Haukum klukkan 11:30 og Haukar og HK mætast svo klukkan 15:00. Um kvöldið verður svo væntanlega mikið fjör enda stórdansleikur með Ingó og Veðurguðunum og munu leikmenn sameinast þar í dansi fram á nótt.









