Föruneyti GH, sem kemur fram í Kiwanis á laugardagskvöldið, var stofnað í nóvember á síðasta ári gagngert til þess að koma fram á þjóðlagahátíðinni, Reykjavik folkfestival sem haldin var á Kaffi Rosenberg í mars síðastliðnum. Þar á eftir hélt Föruneytið tónleika í Þjóðmenningarhúsinu á menningarnótt og svo aðra á Kaffi Rosenberg í október. Föruneytið hefur fengið frábærar móttökur áheyrenda.