Herjólfur mun eingöngu sigla til Þorlákshafnar á morgun en vonir stóðu til þess að hægt yrði að sigla til Landeyjahafnar seinni partinn. Nú er ljóst að svo verður ekki og mun Herjólfur því sigla milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar en brottför frá Eyjum er 7:30 og 15:15. Brottför frá Þorlákshöfn er 11:15 og 18:45.