Grunnskólakennarinn og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Íris Róbertsdóttir tekur sæti á Alþingi í dag. Íris leysir Árna Johnsen af í tvær vikur en Árni er á leið í leyfi. Þetta er í fyrsta sinn sem Íris sest á þing en hún sagði í samtali við Eyjafréttir að málið hefði átt stuttan aðdraganda.