Vegna umræðu um niðurfellingu ferðar Herjólfs í Þorlákshöfn núna í morgun vill Eimskip koma eftirfarandi á framfæri: Það er alfarið í höndum skipstjórans að taka ákvörðun um hvort siglt er eða ekki og einnig hvort siglt er á Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn eftir aðstæðum. Slíka ákvörðun verður skipstjórinn einn að taka án utanaðkomandi áhrifa þeirra sem ekki bera neina ábyrgð á öryggi skipsins