Eins og sagt var frá í gær notuðu Eyjamenn tækifærið þegar veðrinu slotaði til að þrífa hús og bíla. Útlitið var heldur svart í Eyjum í vikunni enda hafði ösku, sandi og seltu rignt yfir Vestmannaeyjabæ og úr verður heldur hvimleiður kokteill. Sem betur fer gerist það ekki oft að Eyjamenn fái yfir sig annað eins af ösku en þegar það gerist, eru heimamenn fyrr en varir komnir út með slöngurnar.