Herjólfur heldur áfram að sigla til Þorlákshafnar næstu daga en í fréttatilkynningu frá Eimskip, sem rekur skipið, kemur fram að mun lengri tíma mun taka að dýpka hafnarmynni Landeyjahafnar að nýju. Dýpkunarskipið Perlan komst í gær að dæla sandi í burtu en þurfti frá að hverfa þegar leið að kvöldi. Skipið hefur ekki getað athafnað sig í dag en ölduhæð er 1,8 metri þessa stundina.