Formaður Framtíðarnefndar Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson heldur nú í fundarherferð um landið. Á fundunum mun Kristján Þór kynna starf Framtíðarnefndarinnar og hvetja flokksfélög Sjálfstæðisflokksins til þátttöku í störfum nefndarinnar. Framtíðarnefndin mun skila miðstjórn flokksins skýrslu og tillögur.