Kvennalið ÍBV tekur í kvöld á móti Val í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í Eyjum. Valsstúlkur fóru illa með ÍBV í byrjun árs í Íslandsmótinu en Valur hafði þá betur 44-18 en liðin léku þá á Hlíðarenda. Flestir reikna með því að leikurinn verði Eyjastúlkum erfiður og því mikilvægt að þær fái góðan stuðning á heimavelli. Leikur liðanna í kvöld hefst klukkan 18:00 og eru stuðningsmenn ÍBV hvattir til að styðja við bakið á stelpunum.