Fjórir Eyjamenn eru í 15 manna hópi Íslands í Futsal, sem er innanhúss knattspyrna. Hópurinn samanstendur af leikmönnum fjögurra félaga en í fyrsta æfingahópnum voru sjö Eyjamenn, sex úr ÍBV og einn frá KFS. Fjórmenningarnir sem eru í lokahópnum eru þeir Albert Sævarsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Tryggvi Guðmundsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson, allir úr ÍBV. Riðill Íslands verður leikinn á Ásvöllum í Hafnarfirði og er fyrsti leikurinn á föstudaginn klukkan 19.