Hermann Hreiðarsson er orðinn þriðji leikjahæsti knattspyrnumaður Íslands frá upphafi en um síðustu helgi fór hann framúr öðrum Eyjamanni, Ásgeiri Sigurvinssyni, á þeim lista. Ásgeir lék á sínum tíma 482 deildaleiki með sínum liðum, ÍBV, Standard Liege, Bayern München og Stuttgart. Hermann lék sinn 483. deildaleik á ferlinum þegar hann kom inná hjá Portsmouth gegn Nottingham Forest í ensku 1. deildinni.