Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður er fjölhæfur. Hann sýnir það á Sportvarpi vefsíðunnar www.sport.is en þar heldur hann úti viðtalsþáttum frá HM í handbolta. Viðfangsefnin eru félagar hans í íslenska landsliðshópnum en viðtölin eru að hætti Kára, bráðfyndin og kannski svolítið ruglingsleg fyrir þá sem ekki þekkja kappann. Þættina má sjá hér að neðan.