Orkan hefur lækkað verð á öllum eldsneytisstöðvum sínum um 9 krónur. Auk þess er í dag svokallaður Ofurdagur Orkunnar, en þá bætist við 5 krónu aukaafsláttur fyrir þá viðskiptavini sem hafa orkulykla. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Skeljungi, eiganda Orkunnar.