Fjölmargir fylgjast þessa dagana spenntir með íslenska karlalandsliðinu í handbolta leggja hvern andstæðinginn á fætur öðrum að velli á HM í Svíþjóð. Eins og flestir vita þá er Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson í leikmannahópi Íslands en Kári skoraði sitt fyrsta mark á stórmóti í leiknum gegn Japan. Annar fyrrum leikmaður ÍBV er í íslenska hópnum en markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson lék með ÍBV tímabilið 2005-2006. Þriðja fyrrum leikmann ÍBV má svo finna í leikmannahópi Argentínu.