Í kvöld var Þórarinn Ingi Valdimarsson, knattspyrnumaður útnefndur Íþróttamaður ársins í Vestmannaeyjum 2010. Annar knattspyrnumaður, Óskar Zöega Óskarsson var valinn íþróttamaður æskunnar og þá var Þórunn Ingvarsdóttir heiðruð fyrir störf í þágu íþróttahreyfingarinnar í Vestmannaeyjum. Þórarinn Ingi gat ekki tekið á móti verðlaununum sjálfur þar sem hann leikur á morgun með íslenska landsliðinu í Futsal en foreldrar hans, Valdimar Gestur Hafsteinsson og Guðbjörg Lilja Þórarinsdóttir tóku við verðlaununum fyrir hans hönd.