Þjóðverjar leggja Íslendinga að velli í kvöld á HM í handbolta. Selurinn Golli, sem er í umsjón starfsmanna Sæheima í Vestmannaeyjum kemst að þessari niðurstöðu en hann spáði rétt fyrir um leik Íslands og Noregs. Menn voru ekki alveg nógu ánægðir með niðurstöðuna hjá selnum og reyndu því aftur en aftur spáði Golli því að Þjóðverjar hefðu betur.