22 ára Eyjastelpa, Sara Sigurðardóttir leiðir lista Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta í kosningum til Stúdentaráðs við Háskóla Íslands. Sara nemur stjórnmálafræði við skólann og situr í stjórn Politika, nemendafélags stjórnmálafræðinnar en hún er ekki eini Eyjamaðurinn á lista því Hjalti Enok Pálsson er einnig á listanum eða í 14. sæti. Hjalti er að læra félagsfræði við HÍ. Þá eru í það minnsta fjórir á lista Stúdentafélags hægrimanna.