Selurinn Golli heldur sínu striki og spáir fyrir um leiki Íslands á Heimsmeistaramótinu í handbolta. Til þessa hefur selurinn tvívegis haft rétt fyrir sér en í síðasta leik virðast menn hafa mistúlkað spádóm hans þegar hann tók enga síld og var það túlkað sem jafntefli. En eins og flestir vita, kjöldrógu Spánverjar Íslendinga í gær. Í kvöld mæta strákarnir okkar hins vegar Frökkum og Golli spáir Íslandi sigri í kvöld.