Upplýsingar um fækkun hjúkrun­ar­rýma á Hraun­búðum komu bæjaryfirvöldum og forstöðu­manni algjörlega í opna skjöldu. Er þetta annað höggið sem stofn­unin verður fyrir á tveimur árum og hefur hjúkrunarrýmum fækkað úr 31 í 28 á tímabilinu en auk þess er eitt hjúkrunarrými sem ætlað er til skammtímavistunar. Auk þess var fækkað um eitt vistunarrými á síðasta ári. Á Heilbrigðisstofnun eru tólf hjúkrunarrými fyrir aldr­aða en jafnvel er búist við að þar verði skorið niður líka.