Flugfélagið Ernir hefur nú ákveðið að setja aukaflug á Eyja á morgun, laugardag. Brottför frá Reykjavík er kl 12:15 og kl 13:00 frá Vestmannaeyjum. Enn eru sæti laus til og frá Eyjum og er fólk hvatt til að bóka sig tímanlega á www.ernir.is. Einnig er aukaflug í dag, föstudag, kl 15:00 frá Reykjavík og frá Eyjum kl 15:45. Enn nokkur sæti laus í það flug.