ÍBV er í góðum málum í B-riðli Fótbolta.net mótsins eftir 1-0 sigur á ÍA í Akraneshöllinni í kvöld. Skagamenn fengu gullið tækifæri til að skora strax á þriðju mínútu þegar liðið fékk vítaspyrnu en Abel Dhaira frá Úganda varði spyrnu Gary Martin. Leikurinn var jafn og bæði lið fengu færi en þrátt fyrir það var einungis eitt mark skorað.