Á laugardaginn, frá klukkan tíu til miðnættis, verða tónleikar á Vol­cano Café undir merkjum rokk og róls. Þar stíga á stokk hljómsveitirnar El Camino, Súr og Dólgarnir. Frítt verður inn og hvetja forsvarsmenn tónleikanna fólk til að fjölmenna. Með þessu vilja hljómsveitirnar vekja athygli á aðstöðuleysi ungs tónlistarfólks í Vestmannaeyjum sem hvergi hefur aðgang að æf­ing­arhúsnæði.