Nú er komið í ljós hverjir eru Dolli og Doddi karlaliðs ÍBV. Eða kannski frekar Steini og Olli. Félagarnir Davíð Þór Óskarsson og Sindri Ólafsson sáu sér leik á borði þegar blaðamaður Eyjafrétta tók viðtal við Guðbjörgu Guðmannsdóttur. Í myndabandinu sem fylgir fréttinni má sjá hvernig þeir félagar hlaupa í bakgrunni aftan að Guðbjörgu, sem fær það óþvegið frá þeim félögum.