Guðbjörg Guðmannsdóttir er reynslumesti leikmaður kvennaliðs ÍBV í handbolta. Hún hefur farið mikinn í vetur, alla jafna verið markahæst í leikjum liðsins og hefur stundum dregið vagninn hjá liðinu. Guðbjörg segir að ÍBV eigi alla möguleika á að ná fjórða sætinu og um leið að komast í úrslitakeppni Íslandsmótsins.