Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV í handbolta lék sinn fyrsta leik í vetur eftir að hafa glímt við meiðsli í eina níu mánuði. Sigurður fór rólega af stað í leiknum en skoraði svo tvö afar mikilvæg mörk í síðari hálfleik og komst í heildina ágætlega frá sínu. Hann viðurkenndi hins vegar að leikur ÍBV hefði verið lélegur og andlaus gegn Fjölni í dag.