Leikmenn kvennaliðs ÍBV sinntu í dag skylduverkunum þegar þær lögðu ÍR að velli í Eyjum. Lokatölur urðu 30:21 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18:12. Þar með heldur ÍBV áfram að þjarma að Fylki, sem er í fjórða sæti deildarinnar en fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Nú munar aðeins einu stigi á liðunum þegar þau eru bæði búin að spila tólf leiki en Fylkir á reyndar að spila síðar í dag gegn FH.