Seinni ferð Herjólfs í dag var felld niður vegna veðurs en í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að búast megi við mikilli ölduhæð síðdegis. Því fór skipið ekki klukkan 15:00 og þar af leiðandi ekki frá Þorlákshöfn klukkan 19:00. Ölduhæð við Surtsey er komin yfir 9 metra.