Karlalið ÍBV í körfubolta lék í dag gegn Álftanesi í B-riðli 2. deildar. Eyjamenn hafa aðeins tapað einum leik í vetur af níu og eru, ásamt HK með besta vinningshlutfallið í B-riðlinum. Álftanes er sæti fyrir neðan ÍBV en hefur engu að síður tapað fimm leikjum af ellefu. Enda kom styrkleikamunurinn á liðunum fljótlega í ljós því ÍBV náði fljótlega þægilegu forskoti sem jókst eftir því sem leið á leikinn. Gestirnir náðu þó aðeins að klóra í bakkann undir lokin og lokatölur urðu 77:58.