Guðbjörg Guðmannsdóttir, hornamaðurinn sterki í ÍBV er í úrvalsliði N1 deildar en valið var tilkynnt nú í hádeginu. Um er að ræða úrvalslið 1. til 9. umferða N1 deildarinnar en Guðbjörg er eini leikmaðurinn í liðinu sem tilheyrir ekki toppliðunum þremur, Stjörnunni, Val og Fram. Liðið má sjá hér að neðan.