Síðastliðið föstudagskvöld vorur fjórir drengir á sextánda ári stöðvaðir við komu Herjólfs til Vestmannaeyja vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leit á einum þeirra fundust ætluð kannabisefni og viðurkenndu þeir allir að eiga aðild að málinu. Drengjunum var sleppt að lokinni skýrslutöku enda telst málið að mestu upplýst. Drengirnir hafa ekki komið áður við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan.